Disney - Colours Of The Wind (Icelandic) Lyrics

  • Artist/Band:
  • Album:
  • Song Title:
  • Text Options:
  • Share & Like:

Þú heldur mig villta og heimska.
Og þú hefur verið víða
svo þetta er sjálfsagt satt.
Ég skil það ekki samt,
enda nær mín greind svo skammt,
hvers vegna þú veist þó svo undrafátt,
undrafátt.

Þið þykist geta eignað ykkur landið,
Sjálf jörðin metin dauðra hluta safn.
En sérhver vera, sérhvert tré og klettur,
á sér líf, á sér anda, á sér nafn.

Þið teljið aðeins vera menn með mönnum,
þá menn sem eru alveg eins og þú.
En reynir þú að feta' í ókunn fótspor
þá finnst hve margt var óþekkt þar til nú.

Berst þér úlfsins væl til eyrna þegar fullt er tungl?
Veistu hvað í brosi hláturapans býr?
Kanntu' að syngja söng með furðuröddum fjallsins?
Kanntu' að mála mynd með vindsins litadýrð?
Kanntu' að mála mynd með vindsins litadýrð?

Við hlaupum létt um leynda furustíga.
Við látum bráðná tungu sólsæt ber.
Já, veltu þér í alsnægtunum öllum,
þó að aldrei renni neitt í vasa þér.

Í rigningunni og ánni á ég systur
Í otrum og í hegrum vinaþing.
Við tengjumst þannig traustum ættarböndum.
Allt sem til er í endalausum hring.

Hve hátt verður mórberjatréð?
Ef þú heggur það fæst ei svar við því.

Þú munt aldrei heyra í úlfi þegar fullt er tungl.
Því hvar í verölsinni sem þú býrð.
þarftu' að syngja söng með furðuröddum fjallsins.
Þarftu' að mála mynd með vindsins litadýrð

Þú átt heiminn hér um bil
Ert samt heimskur allt þar til
þú kannt að mála mynd með vindsins litadýrð

Search Song Lyrics
Browse Artists

A B C D E F G H I J K L M N
O P Q R S T U V W X Y Z #

Hide preview
Lyrics and Video Widget:

Code for your site/blog/space

Click above to select the code then right click & copy to get the code to paste onto your site/blog